|
|
08.01.2009 22:24:51 / Steini
Blindur maður villist inn á kvennabar, finnur sér stól við barborðið og pantar sér glas.
Þegar hann er búinn að sitja nokkra stund kallar hann á barþjóninn: “Heyrðu, á ég að segja þér ljóskubrandara?”
Á sömu stundu dettur allt í dúnalogn á barnum, þar til konan við
hlið blinda mannsins segir við hann með lágri, dimmri rödd: “Áður en þú
segir þennan brandara, góði minn, þá held ég að það sé réttast af því
þú ert blindur, að ég fræði þig um fáein atriði:
Barþjónninn er ljóshærð kona.
Útkastarinn er ljóshærð kona.
Ég er 1,85 á hæð, 100 kíló og er með svarta beltið í karate, og ég er ljóshærð.
Konan við hliðina á mér er ljóshærð og íslandsmeistari í lyftingum.
Konan sem situr hinum megin við þig er ljóshærð og er íslandsmeistari í vaxtarækt.
Hugsaðu þig vel um, vinur. Langar þig enn að segja þennan brandara þinn?”
Blindi maðurinn hugsar sig um andartak, hristir svo höfuðið. “Nei,
ætli það”, segir blindi maðurinn, “Ekki ef ég þarf svo að útskýra hann
fimm sinnum.”
»
02.06.2008 23:30:25 / Steini
Þrír menn sátu saman og voru að monta sig
af því hvernig þeir höfðu látið nýju konurnar sínar fá skyldur og
verkefni heima fyrir. Sá fyrsti hafði gifst konu frá Colarado og hann
hafði sagt henni að hún ætti að þvo upp og þrífa húsið. Það tók nokkra
daga en á þriðja degi kom hann heim í hreint hús og uppvaskið búið og
frágengið. Annar maðurinn hafði gifst konu frá Nebraska. Hann hafði
skipað konu sinni að sjá um öll þrif, uppvask og eldamennsku. Fyrsta
daginn hafði ekkert gerst, annan daginn hafði það aðeins skánað og
þann þriðja var húsið hreint, uppvaskið búið og svaka steik og meðlæti
í matinn. Þriðji maðurinn hafði gifst konu frá Íslandi. Hann sagði
henni að hennar verk væru að halda húsinu hreinu, sjá um uppvaskið, slá
garðinn, þvo þvott og elda heita máltíð í hverjum matmálstíma. Hann
sagði að fyrsta daginn hefði hann ekki séð neitt, annan daginn sá hann
ekki neitt en á þriðja degi minnkaði bólgan aðeins svo hann sá aðeins
með vinstra auganu, nóg svo hann gat útbúið sér eitthvað að borða og
sett í uppþvottavélina!
»
10.05.2008 23:16:45 / Steini
Hún tók hann upp, pússaði hann og hvað haldið þið? Út úr lampanum steig andi.
Furðu lostin konan spurði hvort hún fengi þrjár
óskir uppfylltar.
Andinn svaraði: " Neeei--- vegna verðbólgu, stöðugs
samdráttar, lágra launa í löndum þriðja heimsins og heiftarlegrar samkeppni um
allan heim, get ég aðeins veitt þér eina ósk og hvers óskar þú þér nú ?
"
Án þess að hika sagði konan : " Ég óska friðar í Mið-austurlöndum.
Sérðu þetta kort ? Ég vil að þessi lönd hætti að berjast hvert við
annað."
Andinn leit á kortið og hrópaði : " VVVWaaaááááá, er ekki í lagi
með þig manneskja ! Þessi lönd hafa átt í stríði í þúsundir ára. Ég bý yfir
miklum mætti, en svona rosalega máttugur er ég ekki ! "Ég held að þetta sé ekki
framkvæmanlegt, þú verður að óska þér einhvers annars. "
Konan hugsaði
sig um augnablik og sagði svo: " Okey, ég hef aldrei getað fundið rétta manninn,
þú veist : sem er tillitsamur, skemmtilegur, finnst gaman að elda, hjálpar til
við að þrífa húsið, er góður í rúminu, semur við fjölskyldu mína, er ekki alltaf
að horfa á íþróttirnar og er mér trúr. Já, það sem ég óska mér er : Góður maður
! "
Andinn gaf frá sér langt andvarp og sagði : " Láttu mig sjá þetta
fjandans kort "
»
15.02.2008 21:27:10 / Steini
Ég var bara í 5 mínútur og þegar ég kom út var djöfulsins andskotans lögga að skrifa sektarmiða. Ég gekk að honum og sagði, "Heyrðu félagi, hvernig væri að gefa mönnum smá sjéns ?" Hann leit ekki á mig og hélt áfram að skrifa sektarmiðann, svo ég kallaði hann blýantsnagandi nasista. Hann leit snöggt á mig og byrjaði að skrifa annann sektarmiða fyrir of slitin dekk undir bílnum. Þá kallaði ég hann rolluríðandi, hoppandi fáráðling. Hann lauk við að skrifa miða nr. 2 og setti hann á bílinn með fyrsta miðanum. Svo byrjaði hann að skrifa þriðja miðann !! Svona gekk þetta í um 20 mínútur, því meira sem ég svívirti hann, því fleiri sektarmiða skrifaði hann. Mér var í raun andskotans sama, en þið hefðuð átt að sjá svipinn á honum þegar ég fór yfir götuna að bílnum mínum, settist inn og keyrði burt.
»
15.02.2008 21:18:49 / Steini
Fyrir ári síðan lét ég skipta um alla glugga í húsinu okkar. Ég keypti þessa dýru tvöföldu með orkusparnandi einangrunarhúðinni. Svo, ég meina það sko, þá hringdi verktakinn sem seldi mér rúðurnar í gær. Hann sagðist hafa lokið verkinu fyrir einu ári, og ég hefði enn ekki borgað honum eina krónu. Þó ég sé ljóska þarf ekki að þýða að ég sé nautheimsk. Ég sagði honum að flinki og vel talandi sölumaðurinn hans sem hefði talað við mig, hefði fengið mig til þess á grundvelli þess að þessar rúður myndu borga sig upp sjálfar á einu ári. Hallóó!? Núna er nefnilega liðið nákvæmlega eitt ár! Þá kom löng þögn í símann, svo ég lagði bara á. Hann hringdi vitanlega ekki tilbaka, hann vill nátturlega ekki viðurkenna hversu vitlaus hann sé!
»
27.01.2008 01:48:50 / Steini
Þrír karlar sátu saman yfir glasi. Þeir fóru að ræða um eiginkonur sínar. Fyrst segir sá dökkhærði - konan mín er svo undarleg, það var nautakjötsútsala í Hagkaup um daginn og hún keypti 50 kg af kjöti og við sem eigum ekki einu sinni frystikistu. Nú liggur allt þetta kjöt í þvottahúsinu og við komumst örugglega ekki yfir að éta það áður en það skemmist. Þá segir sá rauðhærði - konan mín er svo klikkuð, það var útsala á notuðum bílum um daginn og hún keypti sér Toyotu og hún er ekki einu sinni með bílpróf. Nú stendur bíllinn bara framan við húsið okkar óhreyfður. Þá var ljóshærði karlinn farinn að veltast um af hlátri og segir við félaga sína - ykkur finnst konurnar ykkar ekki gáfulegar, þið ættuð þá að vita hvernig mín er. Hún er úti á Grikklandi með saumaklúbbnum sínum, ha, ha, ha, og hvað haldið þið að hún hafi tekið með sér, ha, ha, ha. Hún tók með sér 50 pk af smokkum og hún sem er ekki einu sinni með typpi.
»
23.01.2008 19:26:34 / Steini
Það sem fer hér á eftir er spurning sem sett var fram á miðvetrarprófum í efnafræði við University of Washington háskólann. Svar eins nemandans var svo stórkostlegt að prófessorinn ákvað að leyfa öðrum að njóta þess. Aukaspurning: Gefur helvíti frá sér hita eða tekur helvíti til sín hita. Flestir nemendur settu niður staðhæfingar og reyndu að sanna niðurstöður sínar með tilvísun í lög Boyles sem segja að gas kólni undir minkandi þrýstingi en hitni undir auknum þrýstingi. En einn nemandi skrifaði eftirfarandi: Í fyrsta lagi þurfum við vita hvernig massi helvítis breytist í tíma. Þess vegna þurfum við að vita tíðni þess að sálir fari inn í helvíti og tíðni þess að sálir fari úr helvíti. Ég tel þó að við getum gengið út frá því að ef sál fer einu sinni inn í helvíti þá kemur hún ekki út aftur og þar með sleppi engar sálir úr helvíti. Hinsvegar til að áætla hversu margar sálir fara inn í helvíti er rétt að skoða mismunandi trúarbrögð í heiminum í dag. Flest þessarar trúarbragða halda því fram að ef þú ert ekki hluti af þeirra trú, þá farir þú til helvítis. Þar sem það eru fleiri en ein trúarbrögð í heiminum og þar sem fólk tilheyrir ekki fleiri en einum trúarbrögðum í einu, má ganga útfrá að allar sálir fari til helvítis. Miðað við tíðni fæðinga og dauða eins og það er í dag má reikna með að sálum í helvíti fjölgi með ógnarhraða. Nú skulum við líta á breytinguna á stærð helvítis, því lög Boyles segja að til þess að hiti og þrýstingur í helvíti haldist sá sami, verður stærð helvítis að stækka í samræmi við fjölda sálna sem bætast við. Þetta gefur okkur tvo möguleika: 1. Ef helvíti er að stækka með minni hraða en tíðni sálna sem bætast við þá hlýtur hiti og þrýsingur að hækka þar allt fer til helvítis. 2. Ef helvíti er að stækka hraðar en aukning sálna sem inn í það fer, þá hlýtur hiti og þrýstingur í helvíti að minnka þar til helvíti frýs. Þannig, hvort er það? Ef við skoðum staðhæfingu sem Jane bekkjasystir mín setti fram við mig þegar ég var í fyrsta bekk: "Það verður frost í helvíti áður en ég sef hjá þér", og ef tekið er tillit til þess að hún svaf hjá mér í gærkvöldi þá hlýtur númer 2 að vera svarið. Þannig að ég held því fram að helvíti gefi frá sér hita og sé í reynd þegar frosið. Hin hliðin á þessari tilgátu er að þar sem helvíti er þegar frosið og taki ekki við fleiri sálum, þá er eini valkosturinn sá að allar sálir fari til himna og sanni tilvist eilífrar sæluvistar, og það útskýrir að í gærkvöldi sagði Jane hvað eftir annað við mig "Ó guð, Ó guð". Þessi nemandi var sá eini sem fékk A.
»
28.12.2007 16:50:47 / Steini
Gleðileg Jól og til hamingju með nýja árið  
Stonie  frómans í bústaðinum 
»
12.12.2007 21:35:48 / Steini
12. Þú
lest smsin frá honum/henni aftur og
aftur..
11. Þú labbar rosa, rosa hægt þegar þú ert með
honum/henni
10. Þú ert feimin/n þegar þú ert í kringum
hann/hana.
9. Þegar þú hugsar um hann/hana fer hjarta þitt
að slá hraðar.
8. Þegar þú heyrir röddina hans/hennar brosiru af
engri ástæðu.
7. Þegar þú horfir á hann/hana sérðu enga persónu
í kringum þig. Þú sérð bara þessa persónu.
6. Þú byrjar að hlusta á róleg lög.
5. Þú hugsar ekki um annað en
hann/hana.
4. Þú ferð í "vímu" bara af lyktinni af
honum/henni.
3. Þú fattar að þú ert alltaf brosandi þegar þú
hugsar um hann/hana.
2. Þú myndir gera ALLT fyrir
hann/hana.
1. Á meðan þú varst að lesa þetta var ein
manneskja í huga þínum...
»
03.12.2007 23:41:07 / Steini
Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið, svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar okkur.
Kannski opnast dyr hamingjunnar á einum stað um leið og þær lokast á öðrum,en oft störum við svo lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar semhafa opnast.
Kannski er besti vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt eitt besta samtal ævi þinnar.
Kannski er satt að við vitum ekki hvað við höfum átt þangað til að við missum það, en það er líka satt að við vitum oft ekki hvers við höfum saknað fyrr en við öðlumst það. Það eitt að gefa einhverjum alla okkar ást tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti. Ekki búast við ást í skiptum fyrir ást; bíddu þangað til ástin vex í hjörtum annarra og ef það gerist ekki, skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu hjarta.
Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern niður, klukkutíma að láta sér líka við einhvern og einn dag að verða ástfanginn af einhverjum, en það getur tekið lífstíð að gleyma einhverjum.
Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa, vegna þess að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Ekki fara eftir útliti, það getur blekkt. Ekki fara eftir auðævum, þau geta horfið. Finndu einhvern sem fær hjarta þitt til að brosa.
Þegar þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum þig voru brosandi.
Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi og allir í kringum þig grátandi.
»
01.12.2007 21:06:58 / Steini
Einn daginn fékk maðurinn minn skyndilega þá köllun að fara að sinna heimilisstörfunum og í einhverju bjartsýniskasti ákvað hann að þvo stuttermabolinn sinn. Hann var varla kominn inn í þvottahús þegar hann kallaði á mig "Á hvaða stillingu set ég þvottavélina elskan?" "Það fer eftir því hvað stendur á bolnum" kallaði ég til baka. "Húsasmiðjan" Gargaði hann... Og svo segja þeir að ljóskur séu heimskar.....
»
26.11.2007 22:45:11 / Steini
Fjórir félagar, giftir og ráðsettir, voru búnir að ákveða að fara á gæsaveiðar. Á föstudagskvöldið ætluðu þeir að hittast við Select Vesturlandsveg og leggja saman af stað og það yrði að vera ekki seinna en 23.00. Sá fyrsti mætir og sér að hann er einn mættur og klukkan rétt að slá ellefu. Stuttu síðar kemur annar og þá er klukkan orðin ellefu. "Ég ætlaði aldrei að komast út maður, konan var sko ekki sátt við þetta svo ég varð að lofa því að fara með henni á jólahlaðborð í Perlunni." Sá þriðji er rétt að renna í hlað og segir farir sínar ekki sléttar. "Ég átti nú bara ekki að fá að koma með ykkur strákar því konan var alveg óð að ég skuli taka jeppann. Ég varð að lofa henni að skipta út fólksbílnum og kaupa jeppling handa henni." Sá fjórði kemur þegar klukkan er rétt um hálf tólf. "Æ,æ, æ... ég er svo aldeilis hissa á þessum konum. Ég varð að lofa helgarferð til Glasgow fyrir jólin til að komast í þessa ferð strákar....helgarferð...hvorki meira né minna." Þá segir sá sem fyrstur mætti. " Strákar, það er ömurlegt að heyra í ykkur vælið. Ég var mættur hér tímanlega og það var ekkert mál með mína konu." "Nú...hvað er þetta, rosalega ertu heppinn," segja þeir þrír í kór. "Nei, strákar þetta er ekki heppni!" "Nú hvað þá?" spyrja strákarnir vin sinn. "Þegar hún var að fara sofa mætti ég nakinn í svefnherbergið og sagði við hana, Do-do eða ég að skjóta gæs?" "Og hvað sagði hún?" "Hún sagði bara, klæddu þig vel og farðu varlega ástin mín!"
»
15.07.2007 17:23:31 / Steini
Kona var að halda
framhjá manni sínum og var í rúminu með elskhuganum.
Allt í einu heyra þau sér til mikillar skelfingar að
eiginmaðurinn stingur lyklinum í skrána á
útidyrahurðinni. Konan reynir að finna eitthvað ráð í
flýti. Hún tekur fram flösku af nuddolíu og púður. Hún hellir
olíunni yfir elskhugann og hellir svo púðrinu yfir hann
þannig að hann lítur út eins og stytta. "Ekki hreyfa þig fyrr
en ég segi að þú megir það," segir hún og klæðir sig í
flýti. "Stattu bara þarna grafkyrr." Maðurinn kemur inn
í svefnherbergið og spyr: "Elskan hvað er nú þetta?" "Þetta,
æji þetta er bara stytta," segir konan kærulaus.? Gunna og
Jón fengu sér eina fyrir stuttu þannig að ég ákvað að redda
mér einni líka, þetta er svo smart." Ekkert er rætt meira um
"styttuna", ekki einu sinni yfir kvöldmatnum. En klukkan 3 um
nóttina læðist maðurinn fram úr rúminu, fer fram í eldhús,
nær í samloku og mjólkurglas og réttir styttunni. "Gjörðu svo
vel," segir hann. "Ég stóð eins og hálviti hjá Jóni og Gunnu
í heila tvo daga og enginn bauð mér vott
né þurrt."
»
07.07.2007 20:23:28 / Steini
Ekki deyja
ráðalaus!
Gamall maður bjó einn í Þykkvabænum. Hann langaði til þess að
stinga upp kartöflugarðinn sinn, en það var mikil
erfiðisvinna. Bubbi sonur hans, var sá eini sem hann hafði
getað fengið til að hjálpa sér. En Bubbi var lokaður inni á
Hrauninu. Gamli skrifaði honum bréf og sagði honum frá
vandræðum sínum:
Elsku Bubbi minn,
Æ, mér líður hálf-illa, því það lítur út fyrir að ég geti ekki sett
neinar kartöflur niður í garðinn þetta árið. Ég er bara að
verða of gamall til þess að vera að stinga upp beðin. Ef þú
værir hérna, ætti ég ekki í neinum vandræðum, því ég veit að þú
mundir stinga upp beðin fyrir mig.
Kær kveðja til þín, elsku sonur
Pabbi
Eftir örfáa daga, fékk hann bréf frá syni sínum
:
Elsku Pabbi
Í GUÐANNA BÆNUM, ekki stinga upp garðinn ! Ég gróf
ránsfenginn og byssurnar þar !
Þinn
Bubbi
Í birtingu morguninn
eftir komu hópar lögregluþjóna frá embætti
Ríkislögreglustjóra og Selfosslögreglunni og umbyltu öllum beðunum,
> en fundu hvorki þýfi né byssur. Þeir báðu gamla manninn
afsökunar og hurfu á braut. Sama daginn fékk hann annað bréf
frá syninum :
Elsku pabbi
Drífðu nú í því að setja niður kartöflurnar. Við núverandi
aðstæður get ég ekki gert betur.
Þinn elskandi sonur
Bubbi
»
28.06.2007 19:46:20 / Steini
Hjón í sumarfríi fóru
í bústað á Þingvallavatni. Eiginmanninum fannst best að veiða
við sólarupprás. Konunni fannst gaman að lesa. Einn morgun
snýr eiginmaðurinn aftur eftir nokkurra klukkustunda veiðar
og ákveður að leggja sig. Þó konan þekki ekki vel til á
Þingvöllum ákveður hún að fara á bátnum og sigla út á vatnið.
Hún siglir stutta vegalengd út á vatnið, setur út akkerið og
kemur sér vel fyrir og fer að lesa bók. Stuttu seinna kemur
veiðivörður siglandi að henni á bát sínum. "Góðan daginn frú,
hvað ert þú að gera?" spyr hann. "Ég er að lesa bók" svarar
hún (og hugsar með sér hvort það sé ekki augljóst!). "Þú ert
á lokuðu veiðisvæði" segir vörðurinn. "Fyrirgefðu en ég er
ekki að veiða, ég er að lesa" segir hún. "Já" svarar hann,
"En þú ert með allar græjur, hvað veit ég nema að þú farir að
veiða eftir skamma stund. Ég verð að fá þig í land svo ég
geti gert skýrslu um þetta". "Ef þú gerir það þá verð ég að
kæra þig fyrir nauðgun!" svarar hún þá. "En ég hef ekki snert
þig " segir vörðurinn forviða. "Það er rétt en þú hefur allar
græjur og hvað veit ég nema að þú byrjir eftir skamma stund".
"Hafðu það gott í dag frú" sagði vörðurinn og sigldi á
brott.
Boðskapur
sögunnar: Aldrei rífast við konu sem les. Það er mjög líklegt að
hún geti líka hugsað !!
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|